Er hægt að koma við hjá Hljóðbók og kaupa hljóðbækur?
Já. Verið velkomin til okkar í Ármúla 7b, sem er á bak við Ármúla 7, 108 Reykjavík. Við erum við milli kl. 9 og 16 og stundum lengur. Ykkur er velkomið að hringja í síma 534-1100 ef þið hafið einhverjar spurningar. Okkur finnst gaman að heyra í viðskiptavinum.
Er líka hægt að kaupa hljóðbækurnar í búðum?
Hljóðbækurnar okkar fást í verslunum um allt land. Úrvalið er mismunandi milli verslana.
Borgar kaupandi sendingarkostnað ef hann kaupir hljóðbók í gegnum heimasíðuna www.hljodbok.is?
Já.
Er hægt að millifæra greiðslu?
Já. Það er hægt að millifæra inn á bankareikning 0137-26-4195, kennitala 711209-2040. Sendu okkur staðfestingu á millifærslunni til hljodbok@hljodbok.is. Um leið og millifærslan hefur verið afgreidd og staðfest, sendum við pöntunina af stað, í síðasta lagi eftir 2-3 virka daga.
Fyrir kaupendur í útlöndum, hvernig er pantað og greitt, og hver er sendingarkostnaðurinn?
Við biðjum þá sem búa erlendis að nota tölvupóst við pöntunina, og senda pöntunina á hljodbok@hljodbok.is. Tiltaka bók/bækur og búsetuland. Við notumst við gjaldskrá Íslandspósts og sendum upplýsingarnar til kaupandans í tölvupósti, og þá þarf hann að millifæra á bankareikning okkar og senda tölvupóst með kvittun á hljodbok@hljodbok.is IBAN númerið á reikningnum:
Eigandi 711209-2040 - Hljóðbók slf IBAN IS14 0137 2600 4195 7112 0920 40 SWIFT (BIC) NBIIISRE
Er einfalt að panta á netinu?
Mjög einfalt, en lendir þú í vandræðum skaltu endilega hafa samband við okkur í síma 534-1100 eða senda fyrirspurn á hljodbok@hljodbok.is
Greiðslukort á netinu
Þú fyllir út nauðsynlegar upplýsingar, fylgir leiðbeiningum og notar greiðslukort til að greiða fyrir vöruna. Staðfesting verður send í tölvupósti.
Er hægt að panta bók í gegnum síma? Já, það er hægt. Númerin eru 534-1100 og 820-0782.
Hvað tekur langan tíma að fá hljóðbækurnar sendar.
Sé bókin til á lager er hún afgreidd innan 2ja virkra daga. Í einstaka tilviki getur hún verið í framleiðslu, og þá getur tíminn lengst upp í 5 virka daga. Svo bætast við 1-2 dagar í pósti.
Seljið þið hljóðbækur á kassettum?
Nei. Við gefum eingöngu út hljóðbækur á geisladiskum og til niðuhals af netinu.
Er hægt að spila geisladiskana í hvaða geisladiskspilara sem er?
Já, það er hægt.
Er hægt að spila MP3 diskana í öllum geislaspilurum?
Hægt er að spila MP3 diska í geislaspilurum, sem eru gerðir fyrir MP3.
Einnig er hægt að nota DVD spilara og tölvur til að hlusta á MP3 diska.
Er hægt að spila geisladiskana í tölvu?
Já, það er hægt.
Eru hljóðbækurnar eins og útvarpsleikrit?
Nei, það eru lesarar sem lesa upp úr bókunum, með leikrænum tilþrifum. Lesararnir okkar eru leikarar og aðrir atvinnumenn.
Getið þið gefið út hvaða bók sem er á geisladiskum?
Tæknilega séð er það hægt.
Getið þið gefið út nýjar íslenskar bækur um leið og þær koma út á prenti?
Já, það gerum við svo sannarlega. Sjá úrvalið hér á síðunni.
Er dýrt að gefa út hljóðbækur?
Miðað við stærð markaðar er það dýrt, já.
Hverjir nota hljóðbækur?
Allir geta notað hljóðbækur. Að hlusta á lestur/flutning með tilþrifum er allt önnur upplifun. Sumir fá sér líka hljóðbók af uppáhaldsbókinni sinni þótt þeir eigi hana til á prenti. Enn aðrir fá sér bókina líka á prenti ef þeir verða hrifnir af hljóðbókinni.
Eru hljóðbækur ekki bara fyrir sjónskerta, lesblinda, börn og gamalt fólk?
Nei, það er talsverður fjöldi fólks sem ekki gefur sér tíma til að lesa bækur en finnur tíma til að hlusta. Til dæmis við akstur, í göngutúrum, við heimilisstörf eða bara þegar það er of þreytt til að lesa sjálft.
Leigið þið út hljóðbækur?
Nei, en hægt er að fá þær lánaðar á bókasöfnum.
Er hægt að kaupa geisladiska inn í bækur ef þeir hafa týnst eða skemmst?
Í flestum tilvikum er það hægt, hafið samband við okkur beint, ekki bókabúðirnar. Senda má fyrirspurn á hljodbok@hljodbok.is eða hafa samband í síma 534-1100.
Er hægt að hlusta á hljóðbækur á netinu?
Mjög bráðlega verður það hægt. Þegar að því kemur verður það auglýst.
Hvar er Hljóðbók.is til húsa?
Við erum í Ármúla 7b, 108 Reykjavík, sími 534-1100.
.