Hljóðvinnslan ehf. er dótturfélag Hljóðbókar slf., stofnuð sumarið 2003 af Gísla Helgasyni.

Megin starfsemin er upptaka á lesnu efni, fyrir eigin hljóðbókaútgáfu og fyrir aðra viðskiptavini.

Fyrirtækið er til húsa að Ármúla 7b, 108 Reykjavík. Fullkomið hljóðver er á staðnum, með upptökuklefa og nýjustu tækjum til hvers konar hljóðvinnslu. Mest er unnið af lesnu efni og er viðskiptamannahópurinn allstór og mjög litríkur.

Mikil og góð reynsla er fyrir hendi, og eru starfsmenn nú 5, þar af 2 tæknimenn. Hljóðrituð eru skáldverk, fræðirit, barnabækur, handbækur, ævisögur og námsbækur svo að eitthvað sé nefnt. Kappkostað er að vanda eins mikið til allra hljóðritana og kostur er. Fjölfaldað er á geisladiska.

Boðið er upp á að suðhreinsa og bæta gamlar upptökur og færa yfir á geisladiska eða stafrænt form. Gömul segulbönd fá gjörgæslumeðferð, þar sem á þeim liggja oft mikil menningarverðmæti, en þau sjálf orðin stökk og léleg.

Fyrirtæki jafnt sem einstaklingar hafa notfært sér þjónustu Hljóðvinnslunnar.

Netfang er hljodbok@hljodbok.is Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það . Síminn er 534-1100


Hljóðvinnslan

    Karfan þín

    Karfan þín er tóm!