09.01.2012 21:19
Árið byrjar vel!
Þessi hljóðbók kemur út hjá okkur í febrúar 2012.
Gyrðir Elíasson er tilnefndur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir ljóðasafnið Tunglið braust inn í húsið.
Bókin kom út í apríl 2011 á fimmtugsafmæli þýðandans og seldist upp á nokkrum vikum.
Tunglið braust inn í húsið er viðamikið safn ljóða eftir 36 skáld víðsvegar að úr heiminum. Það elsta, kínverska skáldið Tao Tsien, var uppi á fjórðu öld en það yngsta, bandaríska skáldkonan Jane Hirshfield, er fædd 1953.
Hjalti Rögnvaldsson leikari les.
Til baka